Færsluflokkur: Bloggar
19.9.2007 | 10:10
Hugleiðing dagsins í dag úr bókinni ÉG ER INNRA MEÐ ÞÉR
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.9.2007 | 16:40
Hugleiðing dagsins úr bókinni ÉG ER INNRA MEÐ ÞÉR
"Er líf þitt ljúft? Ertu ánægður með það sem þú ert að gera? Lifir þú í sátt við heiminn eða er líf þitt óstöðugt, fullt af sveiflum upp og niður? Ertu óænægður með starf þitt eða hvernig þú lifir? Finnst þér erfitt að vera í jafnvægi með þeim sem eru í kringum þig? kennir þú umhverfi þínu og aðstæðum um óánægju þína og ófullnægju? Finnst þér, að værir þú á einhverjum öðrum stað, mundi allt ganga vel og þá hefðir þú hugarró? Þegar þú hefur fullkominn frið djúpt innra með þér skiptir ekki máli hvar þú ert, með hverjum eða hversu venjulegt, hverudagslegt verk þú vinnur. Ekkert mun geta truflað þig eða komið þér úr jafnvægi, af því að þú hefur fullkomna hugarró og jafnvægi innra með þér. Í stað þess að berjast gegn aðstæðum þínum, lærðu frekar að fylgja þeim og finndu þannig innri frið og skilning, djúpt innra með þér."
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.9.2007 | 22:52
Takk Valur takk
Svakalega eru þetta nú falleg úrslit, hefði samt verið enn fallegra hefði skaginn klárað þetta í kvöld, en fallegt er það samt, svo klárum við þetta á krikanum á sunnudaginn, og svo er það bikarinn.´
Áfram FH!!!
Valur og ÍA skildu jöfn og FH heldur toppsætinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.9.2007 | 13:41
Hugleiðing dagsins úr bókinni ÉG ER INNRA MEÐ ÞÉR
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.9.2007 | 12:47
Hugleiðing dagsins í dag úr bókinni ÉG ER INNRA MEÐ ÞÉR
"Lífið er ríkulegt og yfirfljótandi af nýju en nauðsynlegt er að losa sig við það gamla til að rýma fyrir því. Það getur verið afar sársaukafullt, því þegar þú hefur losað þig við það gamla gætir þú upplifað að hafa ekkert til að halda þér í, vera aleinn og án alls. Þér gæti fundist lífið algjörlega dautt, innantómt og án tilgangs, svo þig langi til að lyfta upp höndum í örvæntingu. Gerðu þér grein fyrir að þegar þú gengur í gegnum slíkt gtímabil er það hluti þróunarinnar, að losa sig við það gamla, svo þú getir fyllst aftur af nýju. Misstu því aldrei von en haltu út uns þú ert algjörlega laus við það gamla. Þá getur þú byrjað aftur endurnýjaður í anda og sannleika. Þú getur orðið eins og lítið barn og notið til fullnustu dásemda þess nýja lífs, um leið og þú smátt og smátt fyllist af því."
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.9.2007 | 14:21
MAÐUR VEIT EKKI SÍNA ÆFINA FYRR EN ÖLL ER
Ég varð fyrir smá sjokki í morgun, en þannig er það að ég sinni smáverkum héðan að heiman fyrir vinnuna mína á meðan ég er í barneignarfríi, eitt af þeim er að ég hringi í kúnnana mína á föstudögum, og í morgun var ég að hringja í kúnnana eins og venjulega, svo var röðin komin að einu góðu fyrirtæki hérna í bænum, ég sel þeim fiskhráefni fyrir starfsmannaeldhúsin, og ég bið um Töru eins og venjulega og þá er mér sagt það að hún Inger Tara sé látin, hafi verið bráðkvödd á heimili sínu nú á dögunum, mig sat hljóðan get ég sagt, vissi ekki hvað ég ætti að segja eða gera, ég vottaði þessari hálf-snökktandi símadömu mína dýpstu samúð, sat hérna eftir og hugsaði; vá hvað þetta er skrítið 29 ára tveggja barna móðir, hress og skemmtileg, dáin frá einum degi til annars, já maður veit svo sannarlega ekki sína æfina fyrr en öll er, hugsaði aðeins til baka, í síðustu viku hringdi ég og þá sagði hún mér að hún væri lasin og hún væri að fara heim og ætlaði að gera pöntunina til mín eftir helgina, heyrði á henni að henni leið ekki vel, hún var nefnilega mjög glaðhlakkaleg og skemmtileg stelpa að tala við undir venjulegum kringumstæðum, ég votta manninum hennar og börnum og hennar nánustu mína dýpstu samúð!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.9.2007 | 13:43
Hugleiðing dagsins í dag úr bókinni ÉG ER INNRA MEÐ ÞÉR
"Láttu vera jafnvægi í öllu. Leggðu hart að þér í vinnu en lærðu einnig að vera duglegur að leika þér og gera það sem þú elskar að gera, sama hvað það er. Engu máli skiptir hvort skemmtanir þínar eru einfaldar eða óhófssamar svo lengi sem þú finnur einlæga gleði í þeim. Þegar þú gerir eitthvað sem þú hefur yndi af, skiptir ekki máli hve erfitt það er; þér finnst þú ekki útkeyrður, heldur glaður og ánægður. Vinna ætti aldrei að vera streð og mun aldrei vera það ef viðhorf þitt gagnvart henni er rétt og þú nýtur þess sem þú ert að gera. Þegar jafnvægi er í lífið þínu finnst þér það vera heilsteypt, þú hafir hvorki of mikið af vinnu eða leik. Hvort um sig er jafn slæmt. Berðu heldur aldrei saman þína ánægju við ánægju annarra; það sem þú nýtur að gera höfðar kannski ekki til þeirra. Gerðu það sem þú nýtur að gera og leyfðu öðrum að gera það sem höfðar til þeirra. Lifðu og leyfðu öðrum að lifa."
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.9.2007 | 00:11
Hugleiðing dagsins í dag úr bókinni ÉG ER INNRA MEÐ ÞÉR
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.9.2007 | 10:08
Hugleiðing dagsins í dag úr bókinni ÉG ER INNRA MEÐ ÞÉR
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.9.2007 | 09:36
"Eins og gerst hefði í gær"
11 September 2001 líður mér seint úr mynni, ég man að ég var staddur í vinnunni minni sem þá var á Radisson SAS Falconer í kaupmannahöfn, man ég stóð við stóru pönnuna að brúna humarskeljar í soð og þá heyrðist það í útvarpinu að flugvél hefði flogið inn í annan tvíburaturninn, og þessi fjölmenni vinnustaður stöðvaðist í bókstaflegri merkingu, og svo stuttu seinna að önnur flugvél hefði flogið inn í hinn, maður rétt kláraði það sem maður var að gera og svo var hlaupið niður í lobbý að sjá þessi ósköp í beinni, við vorum öll hálf lömuð á sál og líkama, maður hálfdofnaði.
Boðað myndskeið með Osama bin Laden birt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Kokkurinn Ógurlegi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
BARNALAND
ÞETTA ER LISTI FYRIR BARNALANDSSÍÐUR SEM KOMA MÉR VIÐ
MANNRÆKT
LISTI YFIR MANNBÆTANDI SÍÐUR
- ZEN
- XA-SPEAKERS
- LJÓSIÐ
- KRISTNI-BOÐSKAPUR
- KRAFTUR
- GREIN EFTIR GRÉTAR FELLS
- DJÖFSI
- BLÁTT ÁFRAM
- ALANÓ KLÚBBURINN
- ÁBYRGIR FEÐUR
- AA
VINIR OG GÓÐIR BLOGGARAR
LISTI YFIR VINI MÍNA OG GÓÐA BLOGGARA
PÓLITÍK
ÞETTA ER LISTI YFIR PÓLITÍKUSA
FJÖLMIÐLAR OG UPPLÝSINGAVEFIR
Þetta er listi yfir fjölmiðla og upplýsingavefi